Sumarbuðir

Hefur þig alltaf langað til að læra á gítar? Nú er tækifærið

KFUM og KFUK og ÆSKR munu standa saman að gítarnámskeiði fyrir leiðtoga og aðra þá sem hafa áhuga á að læra á gítar. Námskeiðið verður haldið í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 á mánudögum kl. 17:30-18:30. Kennari er Hannes Guðrúnarson en hann hefur langa reynslu af því að halda gítarnámskeið fyrir KFUM og KFUK og ÆSKR. Námskeiðið hefst 2. febrúar og stendur til 23. mars, alls 8 vikur.
Þátttaka á námskeiðinu kostar 10.000 krónur. Skráning fer fram í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í sl 588 8899 eða á skraning@kfum.is
Nemendur þurfa að hafa með sér: gítar, blýant, yddara, strokleður, glósubók og góðaskapið 🙂

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889