Sumarbuðir

Óvissuferð YD KFUK á Akureyri

Mánudaginn 9. mars fóru 27 stelpur úr yngri deild KFUK á Akureyri í óvissuferð sem endaði á Flugsafni Íslands. Þar tók Svanbjörn Sigurðsson framkvæmdastjóri á móti hópnum og fræddi hann okkur um ýmislegt tengt íslenskri flugsögu. Sérstaklega fannst stelpunum gaman að kíkja inn í stjórnklefa Gullfaxa sem var fyrsta þota íslendinga og svo var líka spennandi að labba undir stóru vélarnar. Þá voru nokkrar glöggar stelpur sem þekktu Beaver vél Arngríms Jóhannssonar sem snertilenti á Hólavatni á kaffisölu í ágúst síðastliðnum.
Nokkrar myndir voru teknar í heimsókninni og er hægt að skoða þær með því að smella HÉR

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889