Sumarbuðir

Ævintýraflokkur í Vindáshlíð

Þá er hann hafinn, ævintýraflokkurinn sem stelpurnar hafa beðið eftir. Hingað í Vindáshlíð eru mættar 83 kröftugar stelpur sem eru til í allt. Eftir kynningu og niðurröðun í herbergi var hádegismatur. Þá var farið í gönguferð að fossinum Brúðarslæðu en þegar stúlkurnar komu til baka biðu þeirra heilmiklar vatnsgusur sem féllu ofan af þaki og bunuðu úr brunaslöngu. Féll þessi framkvæmd mjög vel í kramið enda glampandi sól og ljúfur andvari úti. Í kvöldmat var píta úr nýju heimabökuðu brauði og borðuðu stúlkurnar mjög vel. Kvöldvakan fólst í nýjum ratleik um svæðið sem endaði svo í lautinni þar sem varðeldur logaði. Þar sungum við góða stund og fengum ávexti en síðan fórum við inn í setustofu og lukum deginum með því að heyra eina af mörgum sögum um hvernig við getum kynnst Guði.
Þetta var hressilegur dagur og fín byrjum á heilmiklu ævintýri sem framundan er, en myndir dagsins má sjá hér. kveðja,
Auður Páls
forstöðukona.

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889