Sumarbuðir

Málþing um æskulýðsrannsóknirnar Ungt fólk 2009 á fimmtudag kl. 13:15

Mennta- og menningarmálaráðuneytið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga Háskólann í Reykjavík og Rannsóknir og greiningu, boða til málþings um niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni Ungt fólk 2009 grunnskólar. Kynntar verða niðurstöður er varða menntun, menningu, tómstundaiðkun og framtíðarsýn nemenda á mið- og unglingastigi í grunnskólum landsins.

Málþingið verður haldið í félagsheimili KFUM og KFUK við Holtaveg 28, Reykjavík fimmtudaginn 22. október og hefst kl. 13:15. Gert er ráð fyrir að málþinginu ljúki eigi síðar en kl. 16:00. Boðið verður upp á kaffi.

Dagskrá
* Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið.
* Lára Björnsdóttir, félagsráðgjafi og formaður velferðarvaktarinnar: Velferðarvaktin – félagsvísar og rannsóknir.
* Ungt fólk 2009 Kynning á rannsóknarniðurstöðum: Jón Sigfússon, Álfgeir Logi Kristjánsson og Margrét Lilja Guðmundsdóttir: Miðstig 5., 6. og 7. bekkur, unglingastig 8. og 9. bekkur
* Þórólfur Þórlindsson, prófessor: Velferð Íslenskra ungmenna: Nýting rannsókna.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur staðið fyrir reglubundnum æskulýðsrannsóknum síðan árið 1992 undir heitinu Ungt fólk. Háskólinn í Reykjavík og Rannsóknir og greining eru samstarfsaðilar ráðuneytisins að þessum rannsóknum. Þátttakendum gefst tækifæri til að bera fram spurningar um niðurstöður úr rannsókninni að kynningu lokinni.

* Fundurinn er öllum opinn
* Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið: valgerdur.thorunn.bjarnadottir@mrn.stjr.is

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889