Sumarbuðir

Fyrsti dagur og tísttilraun (Vatnaskógur)

Fyrsti dagurinn í flokknum hefur farið af stað af miklum krafti. Fótbolti er spilaður af miklum krafti, boðið hefur verið til borðtennismóts og billiardmót hófst fyrr í dag. Smíðaverkstæðið hefur verið opið, frjálsar íþróttir hafa verið á dagskránni og drengirnir hafa bæði farið í og á vatnið (á bátum). Flestir hafa drengirnir tekið hraustlega til matar síns og kvöldvakan kallaði fram mikil hlátrasköll og öflugan söng.
Myndir úr flokknum eru aðgengilegar á slóðinni http://kfum.niba.is/nc/myndir/?g2_itemId=140333 og eins erum við að gera tilraun með að birta smámola eða tíst/tvít á www.twitter.com/vatnaskogur reglulega yfir daginn, þar sem sagt er frá hvað er í gangi.
Hægt er að ná í mig, forstöðumann flokksins, með því að senda tölvupóst á elli@vatnaskogur.net og ég reyni að svara eins fljótt og auðið er. Þó vissulega geti liðið nokkrar klukkustundir milli þess að ég nái að setjast við tölvu.

Kveðja,
Halldór Elías (Elli)

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889