Sumarbuðir

Kaffisala Ölvers á sunnudaginn, 21. ágúst kl.14 – 17 !

Á sunnudaginn, 21. ágúst, verður árleg kaffisala sumarbúða KFUM og KFUK í Ölveri frá kl.14-17.
Gómsætar veitingar verða til sölu, starfsfólk sumarsins verður á svæðinu og aldrei að vita hvort Candyfloss – vél verði á staðnum fyrir yngstu kynslóðina!
Verð er kr.1500 fyrir fullorðna, kr.750 fyrir 6-12 ára, en frítt er fyrir börn yngri en 6 ára. Posi verður á staðnum.
Allir á öllum aldri eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að mæta á kaffisöluna, gera sér glaðan dag í yndislegu umhverfi Ölvers undir Hafnarfjalli, gæða sér á ljúffengum veitingum og styðja við sumarbúðirnar.
Ölver er undir Hafnarfjalli á Vesturlandi. Um 50 mínútna akstur er þangað frá höfuðborgarsvæðinu, en hér má sjá staðsetningu þess á korti: http://ja.is/kort/#q=Hafnarfjall&x=360842&y=443988&z=5

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889