Sumarbuðir

Æskulýðsstarf KFUM og KFUK hefst í þessari viku

Vetrarstarf KFUM og KFUK hefst formlega í þessari viku. Starfið byggir á vikulegum fundum þar sem þátttakendur hittast, syngja saman, fara í leiki, takast á við fjölbreytt verkefni og velta fyrir sér stórum spurningum. Á hverjum fundi er boðið upp á hugleiðingu byggðri á Guðs orði.
Fræðsluefni þessa hausts veltir fyrir sér þjóðgildunum sem mótuðust á fundi 1200 Íslendinga í Laugardalshöll árið 2009 og hvernig þau rýma við kristna boðun.
Öll börn og unglingar á aldrinum 9-15 ára eru velkomin í starf KFUM og KFUK á Íslandi. Þátttaka í starfinu er ókeypis.
Nánari upplýsingar um hvar KFUM og KFUK er með starf má fá á http://kfum.niba.is/aeskulydsstarf/.

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889