Day 27. mars, 2012

Fjör í starfi KFUM og KFUK í Engjaskóla

Fundir í yngri deildarstarfinu í Engjaskóla hafa verið á mánudögum í vetur. Öll börn á aldrinum 9-12 ára eru hjartanlega velkomin og geta tekið þátt í að dansa, taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og læra nýja og skemmtilega leiki.

KFUM og KFUK starfið í Hveragerði

Í vetur hafa tvær æskulýðsdeildir hist í Hveragerðiskirkju á fimmtudögum. Annars vegar yngri deild (fyrir 9-12 ára) og hins vegar unglingadeild fyrir 13-16 ára. Á dagskrá fundanna hafa verið margvíslegir leikir, sem reyna jafnt á líkama og huga. Hóparnir lesa…

AD KFUK-fundur í kvöld 27. mars 2012: Biblíulestur

Í kvöld, þriðjudaginn 27. mars, verður fundur hjá AD KFUK í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28, Reykjavík, kl.20. Á fundi kvöldsins verður biblíulestur í umsjón Bryndísar Möllu Elídóttur, sem mun leiða gesti um sögusvið Biblíunnar.