Sumarbuðir

1.flokkur – Stelpur í stuði í Kaldárseli fara vel af stað

Í gær, föstudag 8.júní hófst fyrsti flokkur sumarsins  í Kaldárseli þegar tuttugu frískar stelpur heldu á vit ævintýranna upp í Kaldársel.

Þegar þangað var komið fóru stelpurnar að koma sér fyrir og eftir hádegi var haldið í ævintýraferð. Síðan var ýmislegt í boði, s.s. hoppukastali, kofagerð, listasmiðja og fleira.

Dagurinn í dag er einnig búinn að vera frábær og stelpurnar og starfsmenn í miklu stuði. Í dag var förinni heitið í Valaból þar sem brugðið var á leik og hellar skoðaðir.  Stelpurnar hafa verið afar duglegar í listasmiðjunni og föndruðu mörg falleg barmmerki, og í dag var keramik-gerð tekin fyrir.

Við biðjumst velvirðingar á því að engar myndir eða fréttir hafa komið inn, en það stafar af því að netið liggur niðri í Kaldárseli, en verið er að vinna að lagfæringu.

Allt hefur gengið framar óskum og framundan í kvöld er fjörug kvöldvaka og kósíkvöld með poppi og öllu tilheyrandi.

Við minnum foreldra og aðstandendur á það að hægt er að fá ítarlegri upplýsingar í simatíma, sem er alla daga flokksins kl.11:15-12 í síma 555-6211.

Kær kveðja frá starfsfólki Kaldársels.

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889