Sumarbuðir

10. flokkur – Vatnaskógur: Flokkurinn fer vel af stað

Það væru tæplega 100 hressir drengir sem mættu í Vatnaskóg í gær. Það hefur blásið aðeins á okkur, en það hefur þó ekki komið í veg fyrir konunglega skemmtun hjá bæði drengjum og foringjum. Svínadalsdeildin í knattspyrnu er hafin og nú þegar hafa verið haldin fjölmörg íþróttamót. Strákarnir hafa skemmt sér í kúluvarpi, kassabílarallýi, skotbolta, ævintýraferðum um skóginn, á smíðaverkstæðinu ásamt leikjum í  íþróttahúsi og úti. Drengirnir eru greinilega ánægðir með að vera komnir í Vatnaskóg!

Komnar eru inn myndir af öllum borðunum og foringjum þeirra. Þær má sjá hér: http://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/sets/72157630726188118/

 

Með kveðju úr Vatnaskógi,

Ásgeir Pétursson, forstöðumaður.

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889