Sumarbuðir

Ráðstefnan Æskan – rödd framtíðar – Hefst á morgun, 28.október!

Frá Mennta-og menningarmálaráðuneytinu:
Ráðstefnan Æskan – rödd framtíðar verður haldin á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík dagana 28. – 29. október 2010.
Samanburðarrannsókn var framkvæmd á síðasta ári meðal norrænna ungmenna á aldrinum 16-19 ára, á öllum Norðurlöndunum þ.m.t. Færeyjum, Grænlandi og á Álandseyjum. Á ráðstefnunni verða niðurstöður rannsóknarinnar kynntar.
Kynningu á niðurstöðum rannsóknarinnar verður fylgt eftir með málstofum og umræðum þar sem stjórnmálamenn, fræðimenn og aðrir sem tengjast ungu fólki munu fjalla um hvernig á að halda áfram að vinna að framkvæmd núverandi stefnu og hvernig hægt er að auðvelda aukna samvirkni á milli stefnu og aðgerða Norðurlanda í málefnum ungmenna.
Heimasíða ráðstefnunnar er www.nyr2010.is

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889