Sumarbuðir

Samkoma sunnudagskvöldið 13. mars á Holtavegi: ,,Nú er hjálpræðisdagur“

Næsta sunnudagskvöld, þann 13. mars, verður að venju samkoma í félagshúsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28 í Reykjavík, kl.20. Yfirskrift samkomunnar er: ,,Nú er hjálpræðisdagur“, en ræðumaður kvöldsins verður Ólafur Jóhannsson. Hin fjöruga Gleðisveit sér um tónlistarflutning og leiðir söng sem gestir eru hvattir til að taka þátt í. Að samkomu lokinni verður sælgætissala KSS-inga opin, og samkomugestir eru hvattir til að staldra við og eiga saman stund.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Samkomur eru haldnar hvert sunnudagskvöld yfir vetrarmánuði í húsi félagsins við Holtaveg. Þær eru tilvalin leið til að hefja nýja viku í notalegum félagsskap, með uppbyggjandi efni og íhugun, og góðri tónlist.

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889