Sumarbuðir

Yfir 1000 börn skráð í sumarbúðir KFUM og KFUK síðastliðnar vikur!

Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK fyrir sumarið 2011 gengur mjög vel og er í fullum gangi. Nú hafa yfir 1000 börn verið skráð til dvalar á komandi sumri í Vatnaskógi, Ölveri, Hólavatni, Kaldárseli og Vindáshlíð.

Fullt er orðið í nokkra dvalarflokka, og byrjað er að skrá á biðlista fyrir þá.

Hægt er að ganga frá skráningu gegnum internetið, HÉR, eða hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Holtavegi 28 í Reykjavík í síma 588-8899.

Ljóst er að skemmtilegt sumar er framundan í starfsemi KFUM og KFUK. Nánari upplýsingar um sumarbúðir félagsins og dvalarflokka þeirra er að finna HÉR.

Einnig er velkomið að hafa samband við Þjónustumiðstöðina á Holtavegi alla virka daga frá kl. 9-17 ef frekari fyrirspurnir vakna.

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889