Sumarbuðir

Stórtónleikar

Á sunnudaginn þann 8.maí kl. 20:00 blása Skógarmenn til stórtónleika.
Eins og flestum er kunnugt eru Skógarmenn að reisa nýjan svefn- og þjónustuskála og mun öll innkoma renna til framkvæmda við nýja skálann.
Á tónleikunum koma fram: Karlakór KFUM, Valgeir Guðjónsson, Jóhann Helgason og Bogomil Font og hákarlarnir. Kynnir er hinn síhressi séra Sigurður Grétar Sigurðsson. Aðgangseyrir er 2.000 kr.
Fyrir tónleikana (frá kl. 19:00) er hægt að kaupa sér grillaða hamborgara og eftir tónleikana verður hægt að kaupa kaffi og meðlæti.
Allir velkomnir
ATH: Hægt að kaupa miða HÉRNA Tilvalið að koma, fagna sumri og njóta skemmtilegrar dagskrár og styðja mikilvæga uppbyggingu í Vatnaskógi.
Þess má geta að fyrsti vinnuflokkur vorsins verður á laugardaginn. Þar verður meðal annars unnið við nýbygginguna.
Skógarmenn: Áfram að markinu

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889