Sumarbuðir

Paradís: Unglingalandsmót KFUM og KFUK

Unglingalandsmót KFUM og KFUK (smámynd)Komandi helgi, 24.-26. febrúar, verður unglingalandsmót KFUM og KFUK haldið í Vatnaskógi. Von er á um 130 unglingum og leiðtogum í Vatnaskóg þar sem boðið verður upp á skemmtilega dagskrá undir yfirskriftinni „Paradís“.

Á mótinu að þessu sinni verður í fyrsta sinn boðað til landsþings ungs fólks í KFUM og KFUK en hver unglingadeild hefur tækifæri til að útnefna einn fulltrúa í unglingaráð félagsins sem mun starfa sem rödd unglinga á aldrinum 13-16 ára á vettvangi KFUM og KFUK.

Mótið hefst með formlegum hætti með kvöldvöku kl. 21:00 á föstudeginum og endar á sunnudeginum í gospelmessu hjá Hallgrímssöfnuði á Saurbæ kl. 14:00.

Opnunartími:
Mán. – Fimmt. 9:00 – 16:00

Fðst.  9:00 – 15:00

Símanúmer: (354) 588 8899
Netfáng: kfum@kfum.is 

Heimilisfáng: Holtavegi 28 , 104 reykjavik

© KFUM OG KFUK Á ÍSLANDI 2024

Kt:690169-0889