Ritstjórn

Ritstjórn

Ritstjórn KFUM og KFUK er aðgangur sem er notaður til viðhalds og þróunar á vefsvæði KFUM og KFUK.

3. flokkur Vatnaskógar í fullum gangi

3. flokkur Vatnaskógar er í fullum gangi. Í gær föstudag voru hoppukastalar í miklu hlutverki. En bátar, fótbolti, íþróttir og kvikmyndagerð eru einnig vel sóttir viðburðir. Í þessum skrifuðu orðum er nokkur úði og smá gola. Í dag er samt…

Komudagur í Vindáshlíð – Dagur 1

Það var eðalhópur stúlkna sem mætti í Hlíðina um hádegisbilið í gær, tilbúinn að takast á við hvaða ævintýri sem að höndum bar. Það tók sinn tíma að koma öllum stúlkunum, með sinn mikla farangur, fyrir en þær voru fljótar…

Hárgreiðslukeppni í Ölveri

Fallegur dagur er nú runninn sitt skeið og ró að færast yfir sumarbúðirnar. Þetta var fyrsti næstumþví venjulegi sumarbúðadagurinn og er það líka ágætt. Stúlkurnar hafa verið duglegar að leika sér, en Biblíulestur og brennóboltakeppnin gengu mjög vel fyrir hádegi.…

Hólavatn 45 ára – Hólavatnshlaup og fjölskylduhátíð

Sunnudaginn 20. júní fagna sumarbúðirnar Hólavatni 45 ára vígsluafmæli og verður skemmtileg fjölskyldudagskrá af því tilefni. Dagskráin hefst strax að morgni með Hólavatnshlaupi en þá gefst vinum og velunnurum Hólavatns færi á að hlaupa eða hjóla frá Akureyri að Hólavatni,…

Ölver í faðmi fjalla – á þjóðhátíðardegi

Stúlkurnar voru vaktar fremur seint með flautuhljómum í blíðskaparveðri; úti var glampandi sól og hlýtt. Eftir hollan morgunverð voru hefbundnir dagskrárliðir fram að hádegi, en í matinn var bayoneskinka með öllu tilheyrandi og borðuðu stúlkurnar mjög vel eins og fyrri…