Category Fréttir

Tarzan stemning í Innri Njarðvík!

Í gærdag var mikil stemning og fjör í Innri Njarðvík, í Akurskóla hjá YD-KFUM og KFUK deild. Það mættu um 20 krakkar og þeim var skipt í hópa. Hver hópur fékk að setja á sig andlitsmálningu og út var farið…

Fyrsta Bænasamvera vetrarins í Friðrikskapellu kl.12.15 í dag

Fyrsta Bænasamvera vetrarins verður í Friðrikskapellu við Hlíðarenda (við Valsvöllinn í Reykjavík) í dag, mánudag 20.september, kl.12.15. Sr. Jón Ómar Gunnarsson, æskulýðsprestur KFUM og KFUK leiðir bænastundina í dag. Bænasamverur verða í Friðrikskapellu alla mánudaga kl.12.15 í vetur. Allir eru…

Skógarvinir – Haust 2010

Skógarvinir er deild fyrir stráka á aldrinum 12-14 ára sem vilja tengjast Vatnaskógi. Í haust munu Skógarvinir KFUM hittast alls fimm sinnum, á föstudögum kl.17. Tveir af þessum fundum fela í sér ferð í Vatnaskóg, með tilheyrandi ævintýrum. Sjá nánar…

Öflugur vinnuflokkur í Vindáshlíð!

Síðustu helgi var mikið um að vera í Vindáshlíð. Unnið var að því að koma vatnsmálunum í lag, en borið hefur á vatnsskorti að undanförnu. Byko er öflugur styrktaraðili þess verkefnis. Einnig kom fríður hópur hörkuduglegra sjálfboðaliða frá Auði Capital…

Samstarfssamningur undirritaður við Borgarneskirkju

Fimmtudagskvöldið 16. september undirritaði Þór Bínó Friðriksson fyrir hönd KFUM og KFUK og Þorsteinn Eyþórsson formaður sóknarnefndar í Borgarnessókn samstarfssamning um æskulýðsstarf í Borgarnesi. Starfið byrjar með fullum þunga í næstu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem KFUM og…

Leiðtoganámskeið 22. september

Haustnámskeið fyrir leiðtoga verður haldið miðvikudaginn 22. september, kl. 18:00 – 20:30 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28. Námskeiðið er fyrir alla leiðtoga og aðstoðarleiðtoga í deildarstarfi KFUM og KFUK og er í samstarfi við kirkjuna. Markmið námskeiðsins…