Category Fréttir

Aðventukvöld í Friðrikskapellu í kvöld kl. 20

Árlegt aðventukvöld verður haldið í Friðrikskapellu í kvöld kl. 20:00. Kórar tveggja félaga sem sr. Friðrik stofnaði, Valskórinn og Karlakórinn Fóstbræður, munu syngja á aðventukvöldinu. Gyða Karlsdóttir, framkvæmdastjóri KFUM og KFUK flytur hugleiðingu. Kári Geirlaugsson stjórnar aðventukvöldinu. Allir velkomnir.

Jólatréssala í Vindáshlíð 12. des!

Jólatréssala verður haldin í Vindáshlíð 12. desember næstkomandi kl. 11.00-15.00. Þá gefst fólki kostur á að koma í Hlíðina og fella sitt eigið jólatré. Jólastund verður í kirkjunni kl. 13.00. Í matskála gefst svo kostur á að gæða sér á…

Aðventufundur KFUM og KFUK – 8. des. kl. 20

Hinn árlegi aðventufundur KFUM og KFUK verður á morgun, þriðjudaginn 8. desember kl. 20. Ræðumaður kvöldsins er Guðrún Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Erla Káradóttir óperusöngkona syngur. Kristín M. Möller, heiðursfélagi KFUM og KFUK hefur aðventufundinn með bæn, Ásta Haraldsdóttir spilar undir…

Börn, bænin og aðventan

Bæn dagsins í dag kemur frá dreng í KFUM á Holtavegi ,, Góði Guð viltu gefa okkur falleg jól og takk fyrir fjölskylduna mína. Viltu hjálpa mér að vera góður. Viltu vera með þeim sem eiga hvergi heima. Í Jesú…

Börn, bæn og aðventan

Bænin í dag kemur frá stúlku í KFUK í Seljakirkju ,,Góði Guð, þakka þér fyrir að passa fjölskylduna mína og þakka þér fyrir all, í Jesú nafni Amen"

Dagatal Hólavatns 2010

Sumarbúðirnar Hólavatni hafa í tilefni 45 ára afmælis 2010 gefið út dagatal með flokkaskrá. Dagatalið er í fjáröflunarskyni fyrir nýbyggingarsjóð en framkvæmdir við nýbyggingu eru komnar hálfa leið og standa vonir til að hægt verði að taka nýtt hús í…