Samkoma á Holtavegi sunnudaginn 8. mars
Samkoma verður á Holtavegi 28 sunnudaginn 8. mars kl. 20. Ræðumaður er dr. Sigurður Pálsson. Mikill söngur. Veitingasala er eftir samkomuna. Allir eru velkomnir.
Samkoma verður á Holtavegi 28 sunnudaginn 8. mars kl. 20. Ræðumaður er dr. Sigurður Pálsson. Mikill söngur. Veitingasala er eftir samkomuna. Allir eru velkomnir.
Aðalfundur KFUM og KFUK á Suðurnesjum verður haldinn í kvöld kl. 20 í félagsheimili KFUM og KFUK að Hátúni 36 í Reykjanesbæ. Venjuleg aðalfundarstörf.
Fjölskylduhelgin: Vellíðan í Vindáshlíð, námskeið fyrir foreldra og börn þeirra um uppeldi og samskipti var haldið í Vindáshlíð helgina 20.-22. febrúar síðastliðinn. Námskeiðið var vel sótt og heppnaðist vel í alla staði. Hér má sjá myndir frá helginni: Myndasíða
Á aðalfundi Vindáshlíðar þann 24. febrúar síðastliðinn var kosin ný stjórn í Vindáshlíð. Núverandi stjórn skipa: Helga Rut Guðmundsdóttir, formaður, Berglind Sigurvinsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Lilja Írena Guðnadóttir, Nanna Björk Rúnarsdóttir, Rúna Þráinsdóttir og Steinunn Jónsdóttir. Úr stjórn gengu; Guðrún Kristjánsdóttir,…
Fundur AD KFUM verður fimmtudaginn 5. mars í Hellisheiðarvirkjun. Brottför er frá Holtavegi 28 kl. 18.00. Komið verður við í Skíðaskálanum í Hveradölum. Efni fundarins er í höndum Valgarðs Jónssonar og hugleiðingu hefur Guðmundur Ingi Leifsson. Verð er kr. 2.500.…
Nú eru komnar myndir frá unglingalandsmótinu í Vatnaskógi á myndasíðuna. Myndasíðan